
Norðurljósahlaup Orkusölunnar er hlaup sem haldið hefur verið í samvinnu við Vetrarhátíð síðustu ár. Hlaupið hefur vaxið og dafnað og er orðin fastur liður margra og góð hvatning til hreyfingar í skammdeginu, viðburður þar sem vinir og fjölskyldur mæta til að njóta þess að hlaupa saman og lýsa upp myrkrið með ljósum og tónlist. Því miður er ekki er hægt að halda viðburð af þessari stærðagráðu í byrjun febrúar og hefur því verið ákveðið að aflýsa hlaupinu í ár.
Norðurljósahlaup Orkusölunnar 2022 verður haldið 5. febrúar og vonumst við til að sem flestir getið verið með okkur að ári þegar aðstæður hafa batnað.
Allir skráðir þátttakendur hafa fengið email með frekari upplýsingum.
Sjáumst á næsta ári.
Íþróttabandalag Reykjavíkur og Orkusalan