Um hlaupið

Norðurljósahlaupið er 4-5 km hlaupaupplifun um miðbæ Reykjavíkur. Slepptu fram af þér beislinu þegar þú upplifir upplýstar götur Reykjavíkurborgar. Allir þátttakendur fá stemningspoka með upplýstum glaðningi, líkt og armbandi og andlitsmálningu. Þannig verður þú hluti af sýningunni frá byrjun til enda.

Þetta er skemmtiskokk eða ganga um miðbæ Reykjavíkur þar sem þátttakendur fá tækifæri til að upplifa borgina í nýju ljósi. Upplifðu spennuna, orkuna og andrúmsloftið. Finndu taktinn þegar blikkandi ljósin vísa þér veginn að fjölbreyttum skemmtistöðvum þar sem tónlist og lýsing skapa stemninguna. Hlaupið er hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar.

Engin tímataka er í hlaupinu enda er þetta ekki keppni sem slík, heldur upplifun. Norðurljósahlaupið snýst um vellíðan, skemmtun og að eiga ógleymanlegt kvöld með vinum og fjölskyldu. Við hvetjum þig til að njóta kvöldsins og gera það eftirminnilegt.

Göngugarpar eru velkomnir! Við skiljum fullkomlega að þú viljir taka því rólega og njóta andrúmsloftsins og stemmingarinnar. Við biðjum þá sem kjósa að ganga að halda sig hægra megin svo hlauparar komist greiðlega fram hjá vinstra megin.

Þetta er ÞITT tækifæri til að skína og því hvetjum við þig til að leyfa sköpunargleðinni að njóta sín! Vertu sýnileg/ur og hjálpaðu okkur að vekja viðburðinn til lífs. Við hvetjum þátttakendur að mæta upplýstir með neonljós og áberandi, skæra liti. Ekki halda aftur af þér og farðu langt út fyrir rammann! Hafðu þó í huga að íslenska veðrið getur verið óútreiknanlegt og því er mikilvægt að klæða sig eftir veðri. Við hvetjum alla þátttakendur að mæta tímanlega.

Næstu hlaup:

2027 - 6. febrúar

2028 - 5. febrúar*
*Birt með fyrirvara um breytingar

Styrktaraðilar

  • ON
  • Corsa
  • Kristall
  • 66 Norður