Viðburðurinn

Norðurljósahlaup Orkusölunnar er 4-5 km hlaupaupplifun um miðbæ Reykjavíkur. Slepptu fram af þér beislinu þegar þú upplifir upplýstar götur Reykjavíkurborgar. Þátttakendur fá allir stemmingspoka með upplýstum glaðningi líkt og armband og andlitsmálning. Þannig verður þú hluti af sýningunni frá byrjun til enda. Þetta er skemmtiskokk eða ganga um miðbæ Reykjavíkur þar sem þátttakendur munu upplifa borgina í nýju ljósi. Upplifðu spennuna, orkuna og andrúmsloftið. Finndu taktinn þegar blikkandi ljósin vísa þér veginn á skemmtistöðvarnar sem með fjölbreytileika sínum leiðast í tónlist og lýsingu. Hlaupið er hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar.

Hlaupaleiðin er um 5 km löng. Hægt er að stytta sér leið um 1 km með því að beygja inn Fjólugötu frá Njarðargötu í stað þess að fara Smáragötu (sjá punktalínur á korti). Þessi stytting verður merkt sérstaklega á leiðinni og gæti hentað þeim sem eru með yngri börn eða bara þreyttir.

Engin tímataka er í hlaupinu því það er ekki „keppni“ sem slík, þetta er upplifun. Norðurljósahlaup Orkusölunnar snýst um heilbrigða líðan, skemmtun og að eyða undraverðu kvöldi með vinum og fjölskyldu. Við hvetjum þig til að gera kvöldið skemmtilegt og eftirminnilegt í hlaupinu. Göngugarpar eru velkomnir! Við skiljum fullkomlega að þú viljir taka því rólega og meðtaka andrúmsloftið og stemminguna, við biðjum þá sem kjósa að ganga að halda sig hægra megin svo hlauparar komist áfallalaust framhjá vinstra  megin.

Þetta er ÞITT tækifæri til að skína þannig að við bjóðum þér að koma með sköpunargleðina. Vertu sýnilegur og hjálpaðu okkur að vekja viðburðinn til lífs. Við hvetjum þátttakendur að koma upplýstir með neon dót og truflað bjarta liti. Ekki halda aftur af þér – farðu langt út fyrir rammann. Hafðu þó í huga að veðráttan á Íslandi kemur sífellt á óvart þannig að klæddu þig eftir veðri. Við hvetjum alla þátttakendur að mæta tímanlega.

2024 - 3. febrúar

2025 - 8. febrúar 

2026 – 7. Febrúar
Birt með fyrirvara um breytingar.

Samstarfsaðilar

  • Orkusalan
  • Kristall
  • 66 Norður